Bjartur gluggaþvottur
- því hreinir gluggar eru l ífsgæði
Bjart er yfir!
Við skulum alveg viðurkenna það. Við erum svoldið spes. Okkur þykir nefnilega gaman að þrífa glugga. Ánægjan er ef til vill frekar tengd því að sjá árangur erfiðisins. Það er nefnilega fátt jafn ánægjulegt en að sjá hreina glugga, lausa við öll óhreinindi og tauma. Enda erum við sérfræðingar í gluggaþvotti.
Það er heldur ekki alltaf æskilegt að fólk baxi við að þrífa gluggana sína sjálft. Stundum getur það líka verið beinlínis hættulegt, enda ekki allra að klöngrast upp háa stiga og sveifla kústi og sköfu. Því þá ekki að láta okkur um það, okkur sem finnst það beinlínis skemmtilegt?
Gluggaþvottur er það sem við gerum - bæði að utan sem innanverðu. Það þarf reyndar líka að þrífa kantana, skola af vatnsbrettunum, eða jafnvel allri klæðningunni.
Og fyrst við erum með stigann á annað borð hjá þér, því ekki biðja okkur um að kíkja á þakrennurnar?
Við höfum verið 'í bransanum' allmörg ár og jafnvel verið með sömu viðskiptavinina í öll þessi ár. Við trúum því nefnilega að viðskiptasambönd eigi að endast og dafna. Þess vegna gerum við okkar besta til að halda viðskipavininum góðum og veita gæðaþjónustu á hagkvæmu verði.
Vantar þig tilboð eða viltu panta strax í fullvissu þess að við stöndum við tímasetningar og verð? Notaðu pöntunarformið eða hringdu strax í síma 6614455.
Sem stendur þjónum við hjá Bjarti aðeins fyrirtækjum og heimilum á stór höfuðborgarsvæðinu og Reykjanesi.
